Elsta "barnið" mitt flutt að heiman

Í gærkvöldi flutti elsta "barnið" mitt að heiman eftir miklar vangaveltur okkar "foreldranna".  En fyrir þá sem ekki vita um hvern er verið að tala þá er það hundurinn sem hefur verið stór hluti af okkar lífi í nær 6 ár, hann Patti.  Við erum oft búin að velta því upp að koma honum annarsstaðar fyrir þar sem hann er ekki mikið fyrir lítil börn og þurfti einnig mjög mikla athygli sem við vorum ekki að ná að veita honum.  Við höfum margoft reynt að finna góða fjölskyldu fyrir hann en alltaf guggnað á því þar sem okkur hefur ekki litist vel á fólkið sem hefur sóst eftir að fá hann og hér á bæ kom alls ekki til greina að láta svæfa hann þar sem hann er svo góður hundur.  Í gær höfðum við svo samband við stelpu sem var að óska eftir smáhundi og hún kom í gærkvöldi að kíkja á hann.  Okkur leist mjög vel á þessa stelpu og henni leist sömuleiðis mjög vel á Patta sem gerði í því að leika allar sínar listir fyrir hana til að heilla hana upp úr skónum.  Það endaði náttúrulega bara þannig að hún fór heim með hundinn og allt hans hafurtask með loforð um að hún myndi vera góð við hann og fara vel með hann.  Hans er náttúrulega mjög sárt saknað hér þessa stundinaCrying en við trúum því að hann sé í góðu yfirlæti og fái verðskuldaða athygli hjá nýjum eiganda.

 

Patti í myndatöku 2005

Annars er lítið annað að frétta héðan þessa stundina.  Býst reyndar við því að Edda vakni í fyrramálið með glóðarauga á báðum þar sem henni tókst að stanga rúmið sitt rétt áður en hún fór að sofa með tilheyrandi öskrum, grenji og látum.  Læt þetta duga í bili.

Kv, Helga


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Jónsdóttir

Ég held að það verði fleiri en þið sem eigið eftir að sakna Patta.... er enn að reyna að finna bestu leiðina til að segja strákunum frá þessu á sem sársaukaminnstan hátt

Sjáumst á sunnudaginn 

Kolbrún Jónsdóttir, 13.3.2008 kl. 21:51

2 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Æi Leiðinlegt að hann skuli vera farinn, en samt gott þegar hann fer á gott heimili. Það er skelfilegt að vera með þessi grei þegar þetta er geltandi alveg út í eitt. En maðu fer víst að þykja ansi vænt um þau og´þá er þetta mjög erfitt þegar þau fara :) Sjáumst á fimmtudaginn, ekkert ennþá á óskalistanum

Guðborg Eyjólfsdóttir, 14.3.2008 kl. 00:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Helgabloggar

Höfundur

Helga Jónsdóttir
Helga Jónsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Picture 016
  • Picture 013
  • Picture 012
  • Picture 010
  • Picture 009

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 822

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband