11.5.2006 | 13:01
MÉR FINNST RIGNINGIN GÓÐ
Veðrið síðustu daga hefur verið með eindæmum gott. Það hefur verið svo gott að það keyrir fram úr öllu hófi. Magnús greyið er búinn að vera mikið úti að leika í góða veðrinu, bæði heima og á leikskólanum og í gær var hann orðinn svo uppgefinn í öllum hitanum að hann sofnaði þegar við vorum að sækja Þorgeir í vinnuna (sem hann gerir reyndar oft). Það væri nú ekkert til að tala um svo sem nema hvað að hann vaknað ekki fyrr en í morgun aftur og þá var hann búinn að sofa í 15 klst samfleytt. Greinilega útkeyrður greyið litla. Edda er líka búin að vera frekar þreytt og pirruð undanfarna daga í hitanum og sofnaði kl 19 í gær sem er miklu fyrr en hún er vön að gera. Þess vegna finnst mér alveg æðislegt að fá rigningu núna svo börnin geti aðeins hvílt sig á sólinni og safnað orku aftur því við erum jú að fara til Costa del Sol eftir viku jibbíjei.
Kv, Helga
Um bloggið
Helgabloggar
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.